THE AVALANCHES – TOGETHER Hljómsveitin The Avalanches frá Ástralíu hefur verið starfandi býsna lengi og það væri kannski helst hægt að kalla tónlistina teiknimynda-teknó eða eitthvað álíka. Í nýja laginu bjóða þeir hlustandanum í sækadelsískt ferðalag með sér og söngkonunni Jessy Lanza sem svíkur ekki aðdáendur dúettsins. LIME GARDEN – CROSS MY HEART Lagið Cross My Heart frá Lime Garden á það sameiginlegt með laginu á undan að það er frekar erfitt að setja á það merkimiða stefnurnar eru margar í blöndunni hjá þessari ensku sveit. Annars er Lime Garden frá Brighton og skipuð fjórum vinum sem vinna hart í því að komast upp á yfirborðið. IN COLOR – HEADLIGHTS Talandi um að brjótast upp á yfirborðið þá er lagið Headlights mögulega að fara koma sveitinni In Color þangað. Lagið er eins og