Aðalræðismaður Rússlands rekinn heim frá Rúmeníu

Rúmenar hafa rekið aðalræðismann Rússlands heim og lokað aðalræðisskrifstofu eftir að rússneskur dróni lenti á íbúðarhúsnæði í rúmensku borginni Galati í nótt. Atvikið er það alvarlegasta í landinu síðan stríð braust út í Úkraínu.Kona og unglingspiltur særðust í nótt þegar rússneskur dróni lenti á þaki íbúðarhúss í Galati, skammt frá landamærunum að Úkraínu. Tugir þurftu að yfirgefa heimili sín.Nicusor Dan, forseti Rúmeníu, segir atvikið það alvarlegasta í Rúmeníu frá upphafi stríðsins. Rúmenar hafa kallað varnarráðið saman, kallað rússneska sendiherrann á teppið, sent aðalræðismann Rússlands úr landi og lokað aðalræðisskrifstofu Rússa í Rúmeníu. Almenningur í Rúmeníu kallar eftir harðari viðbrögðum og vill að Atlantshafsbandalagið bregðist við. Þá hafa vaknað spurningar um hvers vegna dró
Aðalræðismaður Rússlands rekinn heim frá Rúmeníu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd