Sjálfstæðisflokkur og Byggðalisti skrifuðu í dag undir meirihlutasamkomulag í Skagafirði. Viðræður flokkanna á milli hafa staðið yfir síðan skömmu eftir kosningar.Töluverðar breytingar eru í farvatninu í Skagafirði en í fyrsta sinn í 24 ár er Framsóknarflokkurinn ekki í meirihluta.Magnús Barðdal, oddviti Sjálfstæðismanna, verður nýr sveitarstjóri í Skagafirði og tekur við af Sigfúsi Inga Sigfússyni sem hefur verið sveitarstjóri síðan 2018.Að sögn Eyþórs Fannars Sveinssonar, oddvita Byggðalistans, gengu viðræðurnar vel milli flokkanna og ákváðu þeir að gefa sér góðan tíma og vanda til verka.