„Áhugi á samfélaginu, fólki og þeim verkefnum sem sinna þarf er lykillinn að því að endast í svona starfi,“ segir Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ. Því starfi hefur hann gegnt óslitið frá árinu 1998 og er nú, eftir 28 ár í starfi, að hefja sitt 8. kjörtímabil. Enginn núverandi bæjar- eða sveitarstjóri hefur verið jafn lengi í embætti og Kristinn.