Ætla að „reifa allt í drasl“ í Höllinni um helgina

„Við erum að vinna með heilsuna og gera heilsuátak. Heilsuátakið snýst um að rifja upp gamlar hreyfingar úr næntísinu og reifa allt í drasl, sérstaklega í stúdíóinu,“ segir Biggi Veira um stöðuna á GusGus í dag. Hljómsveitin hélt upp á 30 ára afmælið í fyrra með risatónleikum í Laugardagshöll og ætlar að endurtaka leikinn með enn stærri tónleikum á morgun.„Það eru allir aldurshópar að hlusta á GusGus, þetta höfðar bara til mannsins, sem veru,“ segir Daníel Ágúst sem er spenntur fyrir tónleikunum þar sem fólk á öllum aldri á eftir að sameinast í þéttum takti GusGus.Miðstöðin hitti GusGus í Stúdíói 12 og ræddi sögu sveitarinnar, tónleikana framundan og væntanlega plötu. Þú getur séð spjallið í spilaranum hér fyrir ofan.Meira úr Stúdíói 12 með GusGus í Popplandi á Rás 2 í dag.
Ætla að „reifa allt í drasl“ í Höllinni um helgina

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd