Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra og formaður Flokks fólksins er farin í tímabundið veikindaleyfi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins og þar segir enn fremur að Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, muni gegna starfi mennta- og barnamálaráðherra í fjarveru Ingu. Þess er ekki getið hvaða veikindi eru að hrjá Ingu.