Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og mennta- og barnamálaráðherra, er farin í tímabundið veikindaleyfi. Ekki kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins hversu lengi hún verður frá eða hvaða veikindi hún glímir við.Ragnar Þór Ingólfsson, samflokksmaður hennar og félags- og húsnæðismálaráðherra, tekur við skyldum mennta- og barnamálaráðherra meðan Inga er í veikindaleyfi. Þetta er í annað sinn sem ráðherra Flokks fólksins fer í veikindaleyfi á kjörtímabilinu. Það gerðist áður þegar Guðmundur Ingi Kristinsson, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, gekkst undir aðgerð. Hluta þess tíma var Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra í barneignarleyfi. Þá gegndi Inga þremur ráðherradómum um skeið.