Stjórnir SL lífeyrissjóðs og Almenna - Lífsverks lífeyrissjóðs hafa ákveðið að hefja viðræður um hugsanlega sameiningu sjóðanna. Saman yrðu þeir fjórði stærsti lífeyrissjóður landsins með eignir upp á 1.035 milljarða króna.Kanna á hvort sameining sjóðanna myndi skapa sterkari grunn fyrir hagstæð og trygg lífeyrisréttindi beggja sjóða, bæta þjónustu og hafa samlegðaráhrif sem bæta rekstur, að því er fram kemur í tilkynningu um viðræðurnar. Þær eru á frumstigi en þeim á að ljúka fyrir mitt sumar.Rætt hefur verið við fjármála- og efnahagsráðuneytið sem þarf að staðfesta samrunann ef af verður. Eignir sjóðanna námu 1.035 milljörðum um síðustu áramót.RÚV / Kristinn Þeyr Magnússon