Endurtekinn málflutningur í meiðyrðamáli Margrétar Friðriksdóttur fór fram í morgun. Ákæruvaldið krefst þess að hún verði dæmd í þrjátíu daga fangelsi. Í lok þinghaldsins beindi Margrét orðum sínum að Barböru Björnsdóttur héraðsdómara og ítrekaði skoðun sína á henni, áður en hún flutti Passíusálm.