Bjargað úr rússíbana eftir fjóra tíma í 30 metra hæð

Átta háskólanemum var bjargað úr rússíbana í Galveston í Texas í gærkvöldi eftir að þeir höfðu setið þar fastir í fjórar klukkustundir í yfir 30 metra hæð.Rússíbaninn Járnhákarlinn í Pleasure Pier-skemmtigarðinum bilaði þegar vagninn var nærri kominn efst upp, klukkan fimm síðdegis að staðartíma. Slökkvilið kom á staðinn um hálftíma síðar en síðasta farþeganum var bjargað úr vagninum klukkan níu.Engum varð meint af en vagninn var á uppleið þegar hann stöðvaðist og farþegarnir sneru þannig að þeir horfðu beint upp í loft.Hægt er að horfa á björgunaraðgerðirnar í spilaranum hér að ofan.
Bjargað úr rússíbana eftir fjóra tíma í 30 metra hæð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd