Lögregla leitar manns sem áreitti börn í Árbæ

Lögregla leitar manns sem áreitti börn í Árbæ í gær. Þetta staðfestir Grétar Stefánsson aðalvarðstjóri.Maðurinn var með óviðeigandi athugasemdir við börnin sem voru á leik í Árbæ í gær um kvöldmatarleytið. Athugasemdirnar voru kynferðislegs eðlis.Börnin tilkynntu atvikið strax til lögreglu og lögregla vinnur nú að málinu í samráði við foreldra barnanna.Samkvæmt Grétari hefur lögregla undir höndum myndefni af manninum en ekki hefur tekist að bera kennsl á hann.
Lögregla leitar manns sem áreitti börn í Árbæ

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd