Barði mann og stappaði á höfði hans

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi karlmann í átta mánaða fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og fleiri brot. Hann réðst á annan mann í íbúð í Reykjavík í febrúar 2023 og barði manninn ítrekað í höfuðið þar til hann féll í gólfið. Þá stappaði hann ítrekað á höfði mannsins sem fékk margvíslega áverka.Maðurinn var líka sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot, vopnalagabrot og umferðarlagabrot. Í eitt skiptið ógnaði hann manni með hníf til að hafa af honum fé.Brotin framdi maðurinn á árunum 2023 til 2025. Dómur var kveðinn upp á miðvikudag.Héraðsdómur Reykjavíkur.RÚV / Ragnar Visage
Barði mann og stappaði á höfði hans

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd