Sýningin Samfélag í bleyti verður framlag Íslands á 20. alþjóðlega Feneyjatvíæringnum í arkitektúr sem hefst í maí á næsta ári. Sýningarstjóri er Marcos Zotes, einn eigenda Basalt arkitekta. Með honum í teymi eru arkitektarnir Hrólfur Karl Cela og Perla Dís Kristinsdóttir, hönnuðirnir Kristín Eva Ólafsdóttir og Nils Wiberg frá Gagarín, auk Ránar Flygenring, mynd- og rithöfundar.Í tilkynningu frá Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, sem hefur umsjón með íslenska skálanum á tvíæringnum, segir að Samfélag í bleyti velti upp spurningum um samfélagslegt hlutverk arkitektúrs og setji íslenska baðmenningu fram „ sem einstakan vettvang jafnræðis og mótvægi við aukinn einmanaleika og sundrung samtímans.“„Á tímum aukinnar félagslegrar einangrunar hefur sjaldan verið meiri þörf fyrir rými sem styðja við