„Allt sem þú fékkst hjá kaþólsku kirkjunni fannst mér gefa mér svo mikið. Mér fannst ég einhvern veginn vera kominn heim,“ segir Hreinn Líndal óperusöngvari sem er einn af átta íslenskum Mölturiddurum. Möltureglan, elsta riddarareglan í heimi, er frábrugðin flestum öðrum kaþólskum trúarreglum að því leyti að hún er alþjóðlegur lögaðili, gefur út sín eigin vegabréf, frímerki, númerplötur og mynt. Hún er með sendiráð í 115 ríkjum, sendiherra hjá Evrópusambandinu og áheyrnarfulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum.Hreinn er óperusöngvari og rak um tíma tískuhúsið H. Líndal og sá um að klæða Vigdísi Finnbogadóttur fyrstu ár hennar á forsetastóli í samstarfi við tískurisa á borð við Valentino. Hann var mikill vinur Ronalds Regan fyrrum Bandaríkjaforseta og hefur alla tíð sinnt mannúðarstörfum af miklum