Að sofa vel eða jafnvel að sofa út er draumur margra foreldra með ung börn. Sumir foreldrar hafa meira að segja ákveðið kerfi þannig að fólk skiptist á; annað vaknar á ókristilega tímanum til að sjá um krílið svo hitt geti sofið lengur og svo framvegis.