Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir brýnt að treysta þjóðinni þegar kemur að því að ákveða hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju.Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, gagnrýnir undirbúning og meðferð tillögunnar harðlega og segir hana meðal annars í skötulíki. ÞORGERÐUR SAGÐI AÐ NÚ VÆRI KOMIÐ AÐ ÞJÓÐINNI Íslendingar ganga að kjörborðinu 29. ágúst til að greiða atkvæði um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þetta varð ljóst eftir atkvæðagreiðslu á Alþingi í dag. Þá var þingsályktunartillaga utanríkisráðherra samþykkt með 34 atkvæðum gegn átta.Þorgerður Katrín og Sigríður ræddu tillöguna og umræður á þingi síðustu daga í Kastljósi í kvöld. Aðspurð sagði Þorgerður tillöguna fyrst og fremst snúa að því að treysta þjóðinni.„Mér finn