Formaður VR hefur þungar áhyggjur af áhrifum aukinnar verðbólgu á launafólk. Hún segir mikilvægt að fyrirtæki og sveitarfélög axli meiri ábyrgð á ástandinu.Verðbólga var 5,1 prósent í maí og stendur því sem næst í stað frá því í apríl, þá var hún 5,2 prósent. Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir haustið geta orðið þungt með þessu áframhaldi.„Við höfum alveg verið skýr með það að við teljum ekki endilega að almennar launahækkanir séu það besta í stöðunni. Hins vegar er það svo að það er eina tækið sem við höfum.“Halla segir ljóst að forsendur kjarasamninga séu að bresta. Þar virkjast endurskoðunarákvæði í lok október ef verðbólga mælist meiri en 4,7%.„Með kjarasamningunum sem voru undirritaðir fyrir rúmum tveimur árum síðan var gert ráð fyrir því að launafólk myndi undirgangast lágar launa