Gael Strack er fyrrverandi saksóknari í Bandaríkjunum sem sérhæfði sig í heimilisofbeldi. Hún er líka annar stofnandi samtakanna Hope International sem reka fræðslusetur um kyrkingar. Strack heldur vinnustofur víða um heim fyrir lögreglu og heilbrigðisstarfsfólk um alvarleika kyrkinga og nú er komið að Íslandi.Kastljós sat hluta vinnustofunnar og fjallar ítrarlega um hana í þættinum í kvöld.„Aðalatriðið er að við þurfum að taka kyrkingarmál alvarlega. Aukin hætta er á því að þau sem eru kyrkt verði aftur fyrir kyrkingu og þar með eykst hættan á að þau verði drepin eða á alvarlegum, lífshættulegum heilsufarslegum afleiðingum. “Strack segir að það séu aðallega menn sem beiti kyrkingartaki og þeir eigi það flestir sameiginlegt að hafa lent í einhvers konar áfalli í æsku.„Þeir eiga oft að baki