Samninganefndir Bandaríkjanna og Írans hafa samþykkt viljayfirlýsingu um 60 daga framlengingu vopnahlés milli ríkjanna og upphaf viðræðna um kjarnorkuáætlun Írans. Samkomulagið er þó háð samþykki Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Þetta hefur Axios eftir tveimur bandarískum embættismönnum auk heimildarmanns sem á aðild að samningaviðræðunum.Fáist Trump til að samþykkja samninginn yrði það þýðingarmesti áfanginn í átt að friði í Mið-Austurlöndum frá því að stríð Írans og Bandaríkjanna hófst. Samkomulag sem næði yfir allar kröfur Trumps er varða kjarnorkuáætlun Írans krefst þó frekari viðræðna. FELUR Í SÉR ÓHEFTA FÖR SKIPA UM HORMÚSSUND „Þetta er samkomulag sem dregur alla að borðinu. Við munum ná saman um smáatriðin í samningaviðræðum,“ segir annar heimildarmaður Axios innan úr bandaríska