Bjóða teppi, sængur eða hlutabréf upp í ullarskuldir

Ístex hefur boðið sauðfjárbændum að taka út vörur eins og ullarteppi, í stað þess að greiða þeim fyrir innsenda ull. Að greiða fyrir ull með ullarvörum Það er neyðarúrræði að sögn framkvæmdastjóra.Í bréfinu sem bændur fengu í vikunni segir: > „Því miður neyðumst við til að tilkynna að Ístex hf. er ekki fært að inna af hendi hefðbundnar peningagreiðslur fyrir ullina að svo stöddu.“ Þess í stað eru tveir kostir boðnir: Að fá vörur frá fyrirtækinu upp í skuldina eða að skuldinni sé breytt að öllu leyti eða að hluta í hlutabréf í fyrirtækinu.Síðustu tvö ár hafa verið ullarvinnslunni Ístex erfið. Skuldir hafa hlaðist upp þar sem fyrirtækið hefur ekki haft undan að greiða fyrir ull sem bændur hafa sent inn til vinnslu. Eins tók verðskráin dýfu. Verð til bænda lækkaði um tugi prósenta fyrir fle
Bjóða teppi, sængur eða hlutabréf upp í ullarskuldir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd