Oddvitar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í Grindavík, allra þeirra flokka sem buðu fram í sveitarfélaginu í sveitarstjórnarkosningunum í vor, hyggja á samstarf á komandi kjörtímabili.Fram kemur í tilkynningu Grindavíkurbæjar að flokkarnir þrír hafi að undanförnu unnið saman að gerð samfélagssáttmála sem ætlað sé að vinna að krefjandi og spennandi verkefnum sem fram undan séu í sveitarfélaginu.Stefnt er að því að kynna samstarfssamninginn og áherslur nýrrar bæjarstjórnar á næstu dögum en fyrsti fundur bæjarstjórnarinnar verður haldinn 2. júní.Grindavíkurbær