LUIGI, MARON BIRNIR – BERDREYMI Ungstirnin Luigi og Maron Birnir hafa sent frá sér lagið Berdreymi sem er eftir þá félaga og Kristján G. Ómarsson Saenz og er á plötunni Leikurinn er leikurinn. Starri Snær Magnússon sá um hljóðblöndun. UNDIRALDAN FIMMTUDAGINN 28. MAÍ Það er hressileg útgáfa þessa dagana og færri komast að en vilja í Undiröldunni þar sem var boðið upp á nýmeti frá Luigi ásamt Maron Birni, Nýdönsk, Hjálmum og mörgum fleirum. IZLEIFUR – KANNSKI Í ÖÐRU LÍFI Kannski í öðru lífi er nýjasta lagið frá Ízleifi og er að hans sögn mjög sumarlegt. Síðasta plata hans 100&einn sem hann gaf út fyrr á árinu hefur gengið vel og bar þar hæst lagið Hugsa alltof mikið um þig ásamt Elínu Hall sem hefur verið í góðri spilun í útvarpi og streymi. RAGNHEIÐUR GRÖNDAL – ÉG ÞAKKA Lagið Ég þ