Í Þetta helst í dag er sjónum beint að mögulegum breytingum á framkvæmdum sem tengjast samgöngum á höfuðborgarsvæðinu - en þau mál voru mikið rædd í aðdraganda kosninga og breytingum lofað.Í samstarfssáttmálum meirihlutanna í Reykjavík og Hafnarfirði er áhersla lögð á að endurskoða samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Framkvæmdastjóri Betri samgangna segir það velta á útfærslu hvort það myndi leiða til tafa á framkvæmdum.Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Samfylkingin undirrituðu á þriðjudaginn nýjan málefnasamning meirihluta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar. Þar er það nefnt meðal helstu verkefna að fara fram á endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins með tilliti til fjármögnunar og tímasetninga verkefna innan Hafnarfjarðar með það að markmiði að ná fram mikilvægum úrbótum í samgöng