Greiðslumiðlunarfyrirtækið Rapyd hefur sagt upp um fjörutíu starfsmönnum vegna skipulagsbreytinga á alþjóðavísu. Skipulagsbreytingarnar hafa það í för með sér að gervigreind mun leysa af störf fjölda starfsmanna. Vísir greinir frá þessu.Samkvæmt frétt Vísis fengu starfsmenn Rapyd tölvupóst frá Arik Shtilman forstjóra Rapyd í dag. Í póstinum, sem Vísir hefur undir höndum, boðar hann til starfsmannafundar 2. júní vegna uppsagnanna.Hann segir að með innleiðingu gervigreindar hafi fyrirtækið gjörbreytt verklagi sínu og hvernig störf séu unnin. Hann segir að með þessari innleiðingu geti fyrirtækið starfað hraðar, aukið nákvæmni og skilað betri árangri fyrir viðskiptavini fyrirtækisins. RAPYD VERÐI ÁFRAM SKULDBUNDIÐ ÍSLENSKA MARKAÐNUM Í skriflegu svari Garðars Stefánssonar, forstjóra Rapyd Eu