Hanna Katrín Friðriksson atvinnumálaráðherra segir að það sé ánægjulegt að framkvæmdastjórn ESB sé farin að beita DSA-reglugerðinni af fullum þunga.„Við þekkjum það bara hér á landi að fólk er að kaupa óafvitandi jafnvel eitraðar vörur fyrir börnin sín því það fær ekki þessar nauðsynlegu upplýsingar. Þetta er gríðarlega stórt skref,“ segir hún.Fyrr í dag var greint frá því að kínverska netverslunin Temu þurfi að greiða 30 milljarða króna sekt til Evrópusambandsins. Þetta er vegna þess að verslunin passaði ekki nægilega vel upp á það að ólöglegar og hættulegar vörur, þar á meðal fyrir börn, væru ekki seldar í aðdilarríkjum sambandsins.Sektin er sú hæsta sem lögð hefur verið á netfyrirtæki á grundvelli DSA-reglugerðarinnar um fyrirtæki af þessu tagiAtvinnuvegaráðherra segir reglugerðina miki