Hlynur ólst upp í Fossvogi og stundaði íþróttir af kappi. Síðar fór hann til Bandaríkjanna og lagði stund á nám í nornabænum Salem ásamt því að leika knattspyrnu fyrir skólaliðið. Eftir nokkurra ára starf á vettvangi íþrótta færði hann sig í störf er tengjast endurhæfingu á geðsviði og sl. ár hefur hann lagt áherslu á uppbyggingu fólks og endurkomu á vinnumarkað og komið að ráðningum hátt í 400 manns, sem öll áttu að vera óvinnufær.Hann segir mikilvægt að auka aðgengi að skapandi greinum því þær séu endurhæfandi og hafi sannað gildi sitt. Í þeim tilgangi tók hann sér leyfi í fyrra og fór til Bologna á Ítalíu til að kynna sér starfsemi þar sem boðið er upp á skapandi starf í leiklist og útvarpsmennsku m.a.Hlusta má á viðtal Huldu Geirsdóttur við Hlyn í spilaranum hér að ofan.