Áform Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, um að skipta bókstöfum út fyrir tölustafi í námsmati aðalnámskrár voru birt í samráðsgátt í vikunni. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir að ekki sé hægt að reikna með að breytingin taki stuttan tíma og að hana þurfi að undirbúa vel.„Með breytingunni er stefnt að því að gera námsmat skýrara og auðskiljanlegra fyrir nemendur og foreldra, án þess að draga úr faglegu hlutverki kennara eða mikilvægi fjölbreyttra matsaðferða í skólastarfi líkt og núgildandi aðalnámskrá kveður á um,“ segir um málið í samráðsgátt stjórnvalda. NÁMSMAT VERÐI AÐ STYÐJA VIÐ NÁMSKRÁ Magnús Þór segir það ekki lykilatriði hvort einkunnir séu gefnar í tölu- eða bókstöfum heldur að þær gagnist börnum.„Námsmat er svolítið eins og útgerðarmaður sem v