Ísraelsher gerir loftárásir í Beirút og suðurhluta Líbanons

Ísraelsher hefur gert röð loftárása í suðurhluta Líbanon í dag, þar á meðal í höfuðborginni Beirút. Herinn segir árásirnar beinast gegn Hezbollah-samtökunum. Í gær skipaði herinn íbúum að flýja norður yfir ána Zahrani, en hún er um 40 kílómetrum norðan við landamæri ríkjanna tveggja. Skipunin nær til um 14% af landsvæði Líbanons. Viðvörunin var gefin út af því að herinn ætlaði að gera kröftuga árás.Líbanska heilbrigðisráðuneytið segir 11 hafa verið drepna í árásunum.Í frétt BBC segir að árásir Ísraelshers í Beirút hafi hafist um klukkan 11 að íslenskum tíma. Fyrr í morgun gerði herinn árásir í hafnarborginni Týros.AFP-fréttaveitan hefur eftir heimildarmönnum úr líbanska hernum að árásir Ísraelshers hafi meðal annars beinst gegn íbúð í suðurhluta Beirút þar sem ítök Hezbollah eru mikil. Ó
Ísraelsher gerir loftárásir í Beirút og suðurhluta Líbanons

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd