Air Atlanta selt stjórnendum og bandarísku félagi

Baldvin M. Hermannsson, forstjóri Air Atlanta, leiðir hóp lykilstjórnenda sem hefur eignast 51 prósents hlut í flugfélaginu. Á sama tíma keypti bandaríska félagið Atlas Air Worldwide 49 prósent í fyrirtækinu. Bandaríska félagið eignaðist allt hlutafé í tveimur fjárfestingafélögum Air Atlanta sem eiga allar flugvélar félagsins.Fyrri eigendur áttu Air Atlanta í tæp tuttugu ár. Það eru þeir Hannes Hilmarsson, Geir Valur Ágústsson, Stefán Eyjólfsson og Helgi Hilmarsson sem eignuðust flugfélagið og tengd fyrirtæki 2007.Í tilkynningu um viðskiptin segir að engar breytingar verði á daglegum rekstri, staðsetningu eða starfsmannahaldi. Jafnframt ætla núverandi stjórnendur áfram að stýra uppbyggingu félagsins með sama hætti og áður.
Air Atlanta selt stjórnendum og bandarísku félagi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd