Veittu ökumanni eftirför af Snæfellsnesi í Skorradal

Lögreglan á Vesturlandi veitti ökumanni eftirför af Snæfellsnesi og tókst loks að stöðva för hans í Skorradal skömmu fyrir hádegi. Stöðva átti ökumanninn fyrir of hraðan akstur, en hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu.Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, segir að naglamottum hafi verið beitt en ökumaðurinn komist framhjá þeim þar sem hann var á sérútbúnum bíl.Fjöldi lögreglubíla auk sjúkrabíla og þyrlau Landhelgisgæslunnar voru kölluð út.Ásmundur segir að ökuhraði í eftirförinni hafi ekki verið eins mikill og oft sé í svona atvikum. Ökumaðurinn var að lokum stöðvaður í Skorradal og engum varð meint af.Lögregla lokaði nokkrum vegum vegna eftirfararinnar og löng bílaröð var inn í Borgarnes um tíma.
Veittu ökumanni eftirför af Snæfellsnesi í Skorradal

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd