Í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1 var fjallað um orrustuskipið Bismarck, fjárdrátt framkvæmdastjóra Skoska þjóðarflokksins, stjórnmál í Svíþjóð og stöðuna í átökum Bandaríkjanna og Írans og möguleika á friðarsamningum. ENDURMINNINGAR SJÓLIÐSFORINGJA AF BISMARCK Fyrst var rifjað upp viðtal úr Kastljósi á sunnudegi 1989 við Burkard von Müllenheim-Rechberg sem var hæst settur þeirra sjóliðsforingja sem komust lífs af er orrustuskipinu Bismarck var sökkt 1941. Hann nam lögfræði eftir síðari heimsstyrjöldina og gekk til liðs við utanríkisþjónustu Vestur-Þýskaland og var fyrsti ræðismaður Vestur-Þýskalands á Íslandi. Von Müllenheim-Rechberg skrifaði bók um reynslu sína í þýska flotanum. Hún heitir ,,Orrustuskipið Bismarck : frásögn skipverja sem komst lífs af úr viðureigninni". Bókin