26 sagt upp hjá Bláa lóninu

29 stöðugildi verða lögð niður hjá Bláa lóninu og 55 starfsmenn verða fluttir milli sviða í skipulagsbreytingum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bláa lóninu. Þar segir að einnig verði ráðið í ný störf sem ekki voru til innan fyrirtækisins.Alls var 26 starfsmönnum sagt upp í breytingunum, samkvæmt Sigríði Margréti Oddsdóttur, forstjóra Bláa Lónsins.Starfsfólki var tilkynnt um skipulagsbreytingar í höfuðstöðvum fyrirtækisins í morgun. „Markmið breytinganna eru fyrst og fremst að skerpa á hlutverki móðurfélagsins í þjónustu sinni við dótturfélögin, við viljum gera skilin á milli kjarnastarfsemi og stoðstarfsemi skýrari, auka áherslu á sölu og markaðssetningu með tækni, tryggja örugga framkvæmd þróunar- og fjárfestingaverkefna en á sama tíma sækja nauðsynlega hæfni til þess að ná árangri í
26 sagt upp hjá Bláa lóninu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd