Dæmdur hryðjuverkamaður fær að halda áfram námi í efnafræði

Maður sem var dæmdur í fyrra fyrir hryðjuverkastarfsemi fær að halda áfram námi sínu í efnafræði við tækniháskólann KTH í Stokkhólmi. Þetta varð ljóst eftir dóm stjórnsýsluréttar í Stokkhólmi.Maðurinn, sem er 24 ára Svíi, var dæmdur í átta ára fangelsi í Lúxemborg fyrir nokkur brot, þar á meðal hryðjuverk sem beindust gegn gestum Eurovision. Sex ár dómsins eru skilorðsbundin. Hann hafði ætlað sér að eitra fyrir gestum úrslitakvölds keppninnar 2020 með blásýru.Hann hafði áður verið dæmdur fyrir að hafa kveikt í minkabúi í Blekinge í Svíþjóð í félagi við vin sinn.Í frétt sænska ríkissjónvarpsins, SVT, segir að starfsfólk KTH hafi óskað eftir því að manninum yrði vikið úr skólanum eftir að dómurinn féll. Þeirri beiðni var hafnað af brottvikningarnefnd háskólans. Ákvörðun nefndarinnar var áfrý
Dæmdur hryðjuverkamaður fær að halda áfram námi í efnafræði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd