Læknar ósáttir við ummæli Runólfs og stjórnar Landspítalans

Aðalfundur Læknafélags Reykjavíkur fordæmir ummæli Runólfs Pálssonar, forstjóra Landspítalans, og stjórnar spítalans um hlutastörf lækna sem vinna bæði á spítalanum og í einkarekstri. Fundurinn vísar til ummæla í Spítalapúlsi, fréttum og í grein í Morgunblaðinu.Runólfur sagði að á Landspítalanum væri mun hærra hlutfall lækna í hlutastarfi en gerðist á öðrum háskólasjúkrahúsum. Hann sagði að þetta kæmi niður á skipulagi, mönnun og þátttöku lækna í kennslu og vísindastarfi.Í ályktun læknanna segir að ummæli hans og stjórnar séu órökstudd og segir að þau séu ámælisverð. Landspítalinn við Hringbraut.RÚV / Guðmundur Bergkvist
Læknar ósáttir við ummæli Runólfs og stjórnar Landspítalans

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd