Markmiðið einfaldlega að vera bestur

Boxarinn Emin Kadri er á leiðinni til Kaupmannahafnar að berjast við Erik Mato frá Ungverjalandi. Emin er 23 ára og er atvinnumaður í boxi, hann hefur stundað íþróttina frá tíu ára aldri. Áður en hann gerðist atvinnumaður átti hann farsælan feril sem áhugamaður og barðist rúmlega 50 sinnum og tók þátt í heims- og Evrópumeistaramótum. Emin er líka virkur á samfélagsmiðlum og þar deilir hann alls kyns efni bæði tengdu atvinnumennskunni og daglegu lífi.Emin var gestur þeirra Guðrúnar Dísar Emilsdóttur og Atla Fannars Bjarkasonar í Morgunútvarpinu. ÞÓTTI GAMAN AÐ SLÁST Emin segist hafa byrjað í boxi einfaldlega vegna þess að honum þótti gaman að slást. Hann kveðst hafa verið orkumikill krakki, reiður og þurft útrás fyrir alla þá orku sem hann hafði. Fyrir börn sem finna sig ekki í bolta- eð
Markmiðið einfaldlega að vera bestur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd