Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, ritar hálfgerða heimsósómagrein í Morgunblaðið. Greinin birtist í morgun en þar getur hann vart tekið nógu djúpt í árinni; hann talar eindregið fyrir því að fólk segi „nei“ í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu – sem verður á höfuðdeginum sjálfum.