Framsókn og Viðreisn í meirihluta í Ísafjarðarbæ

Nýr meirihluti hefur verið myndaður í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar. Framsókn og óháðir og Viðreisn gengu í morgun frá samkomulagi um samstarf. Gylfi Ólafsson, oddviti Viðreisnar, verður bæjarstjóri. Kristján Þór Kristjánsson, oddviti Framsóknar og óháðra verður, verður formaður bæjarráðs og Elísabet Samúelsdóttir forseti bæjarstjórnar.Framsókn vann góðan sigur í kosningunum og fékk 34,3 prósent atkvæða og fjóra bæjarfulltrúa en hafði tvo áður. Viðreisn bauð fram í fyrsta skipti og fékk 16,0 prósent og einn bæjarfulltrúa. Viðreisn var áður hluti af Ísafjarðarlistanum sem vann meirihluta í bæjarstjórn í kosningunum 2022. ÍSAFJARÐARBÆR – LOKATÖLUR Lokatölur frá 17. maí 2026 kl. 00:56 Nánari greiningu má finna á ruv.is/kosningar.
Framsókn og Viðreisn í meirihluta í Ísafjarðarbæ

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd