Lestarstöðin í Winterthur er á meðal fjölförnustu lestarstöðva Sviss.Wikimedia Commons / Adrian MichaelMaður særði þrjá með eggvopni á lestarstöð í borginni Winterthur í norðurhluta Sviss í morgun. Svissneska lögreglan hefur handtekið grunaðan árásarmann.Í tilkynningu lögreglu segir að árásin hafi verið gerð skömmu eftir klukkan hálf níu að staðartíma. Maðurinn sem var handtekinn er 31 árs gamall Svisslendingur. Tildrög árásarinnar eru til rannsóknar.