„Ég óska hér með eftir afriti af öllum mínum sjúkragögnum sem skráð hafa verið í heilbrigðiskerfinu,“ skrifaði karlmaður á fertugsaldri í erindi til embættis landlæknis í lok ágúst.Nokkrum dögum síðar fékk hann hluta sjúkraskrár sinnar – sex ár af þrettán hjá einum geðlækni. Hann var ósáttur við að svo mörg ár vantaði í sjúkraskrána en honum brá enn frekar í brún þegar hann skoðaði gögnin betur.Í sjúkraskránni var talsverður texti hulinn með svörtum reitum en það var nóg að draga bendilinn yfir svörtu reitina, „highlighta“ textann upp á ensku, til þess að textinn kæmi í ljós.Embætti landlæknis afhenti karlmanni viðkvæmar upplýsingar um fjóra aðra þegar hann óskaði eftir afriti af eigin sjúkraskrá. Upplýsingarnar höfðu verið svertar en reyndust samt auðlesanlegar.Maðurinn sá því að sjúkrask