Verðbólga var 5,1 prósent í maí og stendur því sem næst í stað frá því í apríl, þá var hún 5,2 prósent.Þetta er fyrsta verðbólgumælingin eftir að virðisaukaskattur á eldsneyti var lækkaður 1. maí. Það var gert til að halda aftur af hækkun eldsneytisverðs vegna stríðsins við Persaflóa og til að sporna gegn verðbólgu.Í tilkynningu Hagstofunnar segir að ef skattheimtan hefði verið óbreytt hefði eldsneytisverð hækkað og valdið aukinni verðbólgu. Samkvæmt þessu var verðbólgan 0,32 prósentum minni en hún hefði annars verið vegna skattalækkunarinnar.Það sem hafði helst áhrif á verðbólgu til hækkunar var húsnæðisverð, ef því er haldið fyrir utan er verðbólgan 4,6 prósent.Í kjarasamningum frá 2024 er endurskoðunarákvæði. Ef verðbólga verður ekki komin undir 4,7 prósent er hægt að segja upp kjarasam