Verðlag stóð nánast í stað milli mánaða í maí þrátt fyrir talsverða lækkun á eldsneytisverði í kjölfar lækkunar virðisaukaskatts á bensín og dísel. Verðbólga mælist nú 5,1 prósent, sem er lækkun frá síðasta mánuði, þegar hún mældist 5,2 prósent. Samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í morgun hækkaði vísitala neysluverðs um 0,07 prósent frá apríl til maí. Hún mælist nú...