„Þessar buxur eru magnaðar því þær eru með opið í klofinu og yfir rassinn. Þetta hylur allt nema það sem buxur eiga að hylja,“ segir leikstjórinn Egill Andra sem vakti athygli fyrir klæðaburð sinn á Grímunni í vikunni. Egill er 24 ára gamall og tók við verðlaunum fyrir hönd leikarans Árna Péturs sem var staddur á Spáni.