Úkraína hefur hvatt Evrópusambandið til þess að hjálpa til í viðræðum ríkisins við Rússland um lok innrásarstríðsins. Evrópusambandið hefur haft þetta til skoðunar þar sem tilraunir Bandaríkjanna til að miðla málum hafa stöðvast og aukinn þungi færst í árásir Rússa á Úkraínu að undanförnu. Á meðal þeirra sem nefndir hafa verið sem sérstakir samningamenn eru Angela Merkel, fyrrverandi kanslari Þýskalands, og Mario Draghi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu.Á óformlegum fundi utanríkisráðherra ESB á Kýpur í morgun lagði Kaja Kallas, utanríkismálastjóri ESB, áherslu á að nálgast ætti viðræður við Rússland sem sameiginlegt verkefni.Rússar vilji fá afléttingu á refsiaðgerðum ESB gegn ríkinu. ESB eitt geti ákveðið hvort þeim verði aflétt eða ekki. „Til að hægt sé að taka slíka ákvörðun þurfum v