Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, kemur til Svíþjóðar í dag. Sænski fjölmiðillinn Aftonbladet segir að heimsókn forsetans snúist um Saab Gripen herþotur. Blaðið hefur eftir heimildarmönnum sínum að Svíar ætli að gefa Úkraínustjórn nokkrar herþotur og að á sama tíma hefjist viðræður um kaup Úkraínumanna á fleiri Gripen-þotum. Slík kaup myndu Úkraínumenn fjármagna með láni frá Evrópusambandinu.Gripen er nýjasta tegund sænskra herþota, af nýjustu og fullkomnustu gerð orrustuþota.Gripen-herþota á Keflavíkurflugvelli í febrúar.Försvarsmakten/Swedish Armed Forces