Aukaþingfundur verður á Alþingi í dag þar sem þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæði um ESB-viðræður er á dagskrá. Dagurinn var áður ætlaður til nefndastarfa, sem færast þess í stað yfir á laugardag. Útlit er fyrir að umræðurnar klárist í dag.Breytingin var gerð á dagskrá þingsins eftir fund í forsætisnefnd í gærkvöld og þingfundur hefst klukkan hálf ellefu í dag. Fjórir þingmenn Miðflokksins eru á mælendaskrá um þingsályktunartillöguna með sjöttu til fimmtándu ræður sínar um málið.Ljúka þarf seinni umræðu um þingsályktunartillöguna í síðasta lagi í dag og meirihluti þingmanna að samþykkja hana svo unnt verði að halda þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst líkt og stjórnarliðar leggja til. Minnihluti utanríkisnefndar hefur lagt til að hún verði 17. október.Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþ