Gular viðvaranir vegna snjókomu

Kuldi og snjókoma verða í aðalhlutverki í veðrinu í dag og á morgun. Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á Norðurlandi eystra, Austurlandi, Austfjörðum og miðhálendinu vegna snjókomu. Sú fyrsta tekur gildi á Norðurlandi eystra í hádeginu og hinar síðdegis. Veðrinu slotar á morgun, fyrst á Norðurlandi eystra í fyrramálið en ekki fyrr en annað kvöld fyrir austan og á miðhálendinu.Snjórinn verður í fyrstu á heiðum en nær niður að sjó í kvöld. Aðstæður á fjallvegum gætu orðið varasamar fyrir bíla á sumardekkjum.Veðrið verður skaplegra annars staðar. Þó má búast við rigningu sunnanlands en minna fellur úr lofti á landinu vestanverðu.Veðurspáin er svohljóðandi:Norðaustan fimm til tíu metrar á sekúndu, en tíu til fimmtán norðvestantil á landinu og með suðausturströndinni. Rigning, slydda
Gular viðvaranir vegna snjókomu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd