Stefnt er að því að hjólhýsabyggðin sem hefur staðið við Sævarhöfða í tvö ár færist á Gufunes. Reykjavíkurborg og forsvarsmenn óstofnaðs félags, Samtaka hjólabúa, hafa skrifað undir afnotasamning þess efnis. Um er að ræða 3.900 fermetra landspildu á Gufunesi sem er á milli afnotasvæðis Skemmtigarðsins og íbúðabyggðar við Jöfursbás.