Einn fremsti sérfræðingur á sviði neðansjávargangagerðar til liðs við Eyjagöng

Norðmaðurinn Eivind Grøv, einn fremsti sérfræðingur heims í gerð neðansjávarganga, mun veita Eyjagöngum ehf. tæknilega ráðgjöf við undirbúning og hönnun fyrirhugaðra ganga milli lands og Eyja og veita umsagnir um öll rannsóknar- og hönnunargögn frá verkfræðistofum á vegum félagsins.Vefritið Tígull greinir frá þessu og segir Grøv hafa yfir fjörutíu ára reynslu af bergverkfræði og jarðgangagerð. Hann hefur verið ráðgjafi við gerð allra neðansjávarganga í Færeyjum og er ráðgjafi vegna þeirra fimmtu, Suðureyjaganganna.Eivind Grøv var tæknilegur ráðgjafi Spalar við lagningu Hvalfjarðarganga og var kallaður til sem óháður sérfræðingur í deilunefnd vegna jarðfræðilegra áskorana við gerð Vaðlaheiðar- og Norðfjarðarganga.„Við erum afar ánægð með að hafa tryggt okkur krafta Eivinds Grøv. Reynsla han
Einn fremsti sérfræðingur á sviði neðansjávargangagerðar til liðs við Eyjagöng

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd