Áströlsk lögregluyfirvöld hafa kært ónafngreinda 34 ára gamla konu fyrir að hafa átt aðild að hryðjuverkasamtökunum sem kenna sig við íslamskt ríki og fyrir að hafa lagt leið sína á þekkt átakasvæði. Konan kemur fyrir rétt í dag og gæti átt yfir höfði sér allt að tíu ára fangavist.Hundruð kvenna frá ríkjum Vesturlanda voru lokkaðar til Mið-Austurlanda snemma á öðrum áratug aldarinnar þegar hryðjuverkasamtökin höfðu sig hvað mest í frammi. Margar hverjar fylgdu eiginmönnum sínum sem gerðust vígamenn samtakanna.Hryðjuverkadeild áströlsku lögreglunnar segir það eiga við konuna sem fór til Sýrlands 2013 eða 2014 ásamt karlmanni sem nú er talinn fangi í Mið-Austurlöndum.Kúrdískar sveitir, sem áttu þátt í að ganga nánast milli bols og höfuðs á samtökunum, héldu konunni fanginni frá árinu 2019 un