Ísraelsher gerir þungar árásir á innviði Hezbollah í Týros

Ísraelsher hefur lagt til atlögu að hernaðarinnviðum Hezbollah-hreyfingarinnar nærri hafnarborginni Týros í suðurhluta Líbanon. Hér má sjá skemmdir eftir loftárás Ísraela á Týros 26. maí.EPA / StringerSkömmu áður hafði herinn skipað íbúum að forða sér brott og halda sig fjarri vegna yfirvofandi árása. Ísraelsher kveðst í yfirlýsingu á samskiptamiðlinum Telegram nauðugur einn kostur að ráðast af hörku á Hezbollah. Líbanski ríkisfréttamiðillinn NNA greinir frá árásum á Týros auk svæða norðan við borgina þar sem eldar logi í byggingum. Týros er ein af elstu borgum heims og er á heimsminjaskrá UNESCO vegna þess.
Ísraelsher gerir þungar árásir á innviði Hezbollah í Týros

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd